Áfallajóga

Áfallajóga

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Sat 12.09.2026 09:00

Í náminu verður leitast við að skilja afleiðingar áfalla á líkama og sál og kenndar æfingar til að koma jafnvægi á taugakerfið. Náminu er skipt niður á 4 laugardaga og fer kennsla fram á Zoom. Allar lotur eru teknar upp og hægt að horfa þegar hentar. Skila þarf inn matsblaði eftir hverja lotu til að geta útskrifast.

Dagsetningarnar eru þessar (kl. 9-13):

Lota 1: 12.september

Lota 2: 3.október

Lota 3: 24.október

Lota 4: 14.nóvember

Í náminu verður m.a. farið í:

Hvað eru áföll? Einkenni og áhrif á líkama og sál. Taugakerfið, heilinn og breytileiki hjartsláttar. Streita og melting. Meðhöndlun áfalla með jóga og öndunaræfingum. Vagus taugin og polyvagal kenningin. Æfingar til að örva vagus taugina. Bandvefurinn og líkamsvitund. Jóga, hugleiðsla og yoga nidra við kulnun og krónískum verkjum. Sómatíska taugakerfið og sómatískar æfingar.

Námið er opið öllum en hentar alveg sérstaklega jógakennurum. Ekki má kenna jóga nema hafa lokið viðurkenndu 200 klst jógakennaranámi en hægt er að nýta æfingarnar fyrir sjálfan sig og aðra. Námið er viðurkennt af Yoga Alliance sem endurmenntun fyrir jógakennara.

Verð kr. 69.900. Allir fá kvittun fyrir greiðslu og viðurkenningarskjal að námi loknu.

Kennari er Guðrún Reynis. Guðrún er með 200 tíma jógakennararéttindi frá jógaskóla Kristbjargar, 500 tíma réttindi frá Yoga Skyros í Grikklandi og 200 tíma réttindi í trauma-sensitive yoga frá jógaskóla Charlotte Watts í Bretlandi. Að auki er Guðrún með kennsluréttindi í yin yoga, yoga nidra, restorative yoga, rólujóga, pilates, foam flex og trigger point pilates.

Skráning á karmajogastudio.is/namskeid. Frekari upplýsingar á greynis@dohomeyoga.com

Karma & Jógaskólinn er Yoga Alliance viðurkenndur skóli.

Performers

  • Karma Jógastúdíó
    Karma Jógastúdíó

    Fjölbreytt námskeið í jóga og heilsutengdum málum fyrir alla. Sérhæfum okkur í endurmenntun fyrir jógakennara. Yoga Alliance viðurkenndur skóli.

  • Guðrún Reynis

    Yoga teacher with multiple certifications in yoga and trauma-sensitive yoga.