Liðleikaþjálfun
Sat 12.09.2026 09:00
Liðleiki – markviss uppbygging frá grunni til árangurs
Þetta námskeið er hannað fyrir alla sem vilja auka liðleika á réttan, öruggan og markvissan hátt. Hvort sem markmiðið er að ná splitti eða líða betur í líkamanum, færðu hér skýra leið til að byggja upp hreyfigetu og stjórn í neðri hluta líkamans.
Á námskeiðinu verður farið í:
• Vísindin á bak við liðleika og hvernig hann þróast
• Hvernig raunverulegar framfarir í liðleika eiga sér stað
• Bandvefslosun og hlutverk hennar í liðleikaþjálfun
• Anatómíu liðleika – hvernig líkaminn virkar og hvað þarf að gerast til að hann gefi eftir
• Markviss æfingakerfi sem styðja við stöðugar framfarir
Á námskeiðinu er lögð sérstök áhersla á fjögur lykilsvæði/stöður:
1. Hreyfigetu mjaðma
2. Sitjandi víða frambeygju
3. Splitt
4. Spígat
Þetta eru þau svæði sem þurfa að vera laus, sterk og samhæfð til að ná djúpum og öruggum liðleikamarkmiðum.
Með námskeiðinu fylgja 24 æfingamyndbönd til að iðka heima. Fyrir hvert af fjórum svæðunum færðu tvö mismunandi æfingakerfi. Hvert kerfi inniheldur þrjú stig: Byrjendur, lengra komnir og langt komnir. Námskeiðinu fylgja því 6 myndbönd fyrir hvert svæði, samtals 24 myndbönd. Hvert myndband er um 40-50 mínútur að lengd.
Hvert æfingakerfi miðar að sama liðleikamarkmiði en nálgast það með ólíkri aðferðafræði. Þannig getur þú valið þá nálgun sem hentar þér best – eða skipt á milli til að hámarka árangur og forðast stöðnun.
Fyrir hvern er námskeiðið?
• Fyrir jógakennara og aðra þjálfara sem vilja læra að kenna liðleikaþjálfun
• Fyrir þá sem vilja auka liðleika sinn á öruggan hátt
• Fyrir þá sem vilja bæta hreyfigetu mjaðma og draga úr stirðleika
Þetta er námskeið sem nálgast liðleika á heildrænan hátt þar sem fræði og framkvæmd eru sameinuð þannig að þú skiljir ekki bara hvaða HVAÐ þú þarft að gera heldur líka AF HVERJU það virkar.
Námskeiðið fer fram 12.september í gegnum Zoom í september. Við hittumst á laugardegi til að fara yfir fræðihlutann og svo horfir þú á myndböndin heima og tekur nokkrar vikur eða mánuði í að fylgja prógramminu.
Skráning á greynis@dohomeyoga.com
Verð kr. 59.900
Performers
-
Karma Jógastúdíó
Fjölbreytt námskeið í jóga og heilsutengdum málum fyrir alla. Sérhæfum okkur í endurmenntun fyrir jógakennara. Yoga Alliance viðurkenndur skóli.