Yin Yoga kennaranám
Sat 26.09.2026 09:00
Námið skiptist í 3 lotur sem fara fram fyrir hádegi á laugardögum með 3 vikna millibili.
Lota 1: 26.september kl. 9-12
Lota 2: 17.október kl. 9-12
Lota 3: 7.nóvember kl. 9-12
Í náminu verður farið í:
- Hvað er yin og hver er munurinn á yin og restorative yoga?
- Heimspeki yin yoga (orkustöðvar, meridians, orkulíkamar, prana)
- Anatómía og bandvefur
- Yin yoga stöður, hvernig þær eru kenndar, kostir þeirra og hvað ber að varast
- Notkun fylgihluta í tíma og hvernig má gera æfingar auðveldari og erfiðari
- Öndunaræfingar
- Kennslutækni
- Hvernig á að kenna jóga fyrir fólk með áfallasögu
- Þema og samsetning tíma
Hver lota er fyrirlestur í gegnum Zoom og að hverri lotu lokinni fá nemendur aðgang að upptökum með 20 Yin Yoga stöðum. Þetta eru þá samtals um 60 myndbönd með Yin Yoga stöðum sem nemendur fá aðgang að. Ljúka þarf stuttu heimaprófi eftir hverja lotu til að geta útskrifast.
Engar forkröfur eru á þetta námskeið en það er fyrir alla sem hafa áhuga á Yin Yoga. Námskeiðið hentar þó alveg sérstaklega jógakennurum. Vakin er athygli á því að ekki má kalla sig jógakennara nema að hafa lokið 200 tíma viðurkenndu jógakennaranámi. Það má þó kenna Yin Yoga að námskeiði loknu. Þátttakendur fá viðurkenningarskjal að námi loknu. Frekari upplýsingar á greynis@dohomeyoga.com
Performers
-
Karma Jógastúdíó
Fjölbreytt námskeið í jóga og heilsutengdum málum fyrir alla. Sérhæfum okkur í endurmenntun fyrir jógakennara. Yoga Alliance viðurkenndur skóli.