Ráðhústorg
Ráðhústorg, 600 Akureyri
About
Hér tifar hið stóra hjarta bæjarbúa á uppfyllingu sem varð til 1927 þegar ráðist var í að stækka höfnina og dýpka.
Eitt sinn var fjara og vík þar sem Hafnarstræti og Brekkugata mætast. Árið 1927 var fyllt upp í víkina, sem gárungar kölluðu Sóðavík en aðrir Hofsbót, svo langt fram að uppfyllingin teygði sig út á móts við Strandgötu 7. Þarna þótti við hæfi að reisa bænum nýtt ráðhús. Gamla Sóðavíkin, sem þá var vitaskuld horfin, breyttist því í Ráðhústorg sem fékk þó aldrei ráðhús.
Links: